|
|
|
Tölur úr bókfræðigrunniAlmennt um verkefniðAllt síðan byrjað var að nota bókasafnskerfið Aleph 500 eða Gegni árið 2003 hafa aðildarsöfn Gegnis óskað eftir upplýsingum um árlegar viðbætur í bókfræðigrunninn, ásamt upplýsingum um framlag einstakra safna. Jafnframt hafa einstök söfn óskað eftir upplýsingum um framlag einstakra starfsmanna til bókfræðigrunnsins. Ástæða þess að nauðsynlegt þykir að afla nákvæmra upplýsinga um árlegar viðbætur í bókfræðigrunn Gegnis er að bókfræðiskráning er tímafrek, krefst mikillar nákvæmni og sérhæfðs mannafla.
Árið 2009 varð eitt af verkefnum gæðahóps Gegnis að safna og móta aðferðir við öflun tölulegra fyrir bókfræðigrunn Gegnis. Afrakstur þeirrar vinnur var greinargerðin "Tölur úr bókfræðigrunni - greinargerð um söfnun og úrvinnslu tölulegra upplýsinga til ársloka 2008". Hérna er að finna þessa greinargerð og sambærilegar samantektir.
Bókfræðigrunnur Gegnis - greinargerðir um tölfræði
|
  |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |