www.landskerfi.is
 
www.lb.is
  Borgartúni 37, 105 Reykjavík | s. 514-5050 | fax 514-5055 | Aðstoð: hjalp@landskerfi.is | Annað: skrifstofa@landskerfi.is
 

Forsíða
Um Gegni
Fræðsla
Ýmislegt
Póstlistar
Faghópar
Fyrirtækið
Tenglar
Þjónustuvefur


 

Faghópar um skráningu og varðveislu á rafrænu efni

Um verkefnið

Á fundi skrásetjara sem haldinn var í Þjóðarbókhlöðu í lok árs 2008 var ákveðið að endurskoða þyrfti vinnubrögð við skráningu og varðveislu á rafrænu efni. Í kjölfarið var auglýst eftir þátttakendum í tvo vinnuhópa þar sem annars vegar yrði fjallað um skráningu á rafrænu efni og hins vegar varðveislu á rafrænu efni. Báðir þessir hópar hafa nú tekið til starfa.

Markmiðin með störfum hópanna eru þessi:

  • Endurskoða vinnuferli við skráningu á rafrænu efni.
  • Ákveða hvort áfram skuli skrá rafrænt og prentað efni saman í eina færslu eða hvort skrá eigi það í aðskildar færslur.
  • Leita leiða til að auðvelda aðgengi að rafrænu efni í Gegni og gera það sýnilegra í leitarniðurstöðum.
  • Finna vinnulag og setja reglur um varðveislu og aðgengi á rafrænum gögnum.
  • Beita sér fyrir skýrum reglum um skylduskil á rafrænu efni.

Talsmenn hópanna eru Þóra Gylfadóttir, Háskólanum í Reykjavík fyrir skráningarhópinn og Rósa S. Jónsdóttir, Orkustofnun fyrir varðveisluhópinn.

Skráning á rafrænu efni - stöðuskýrsla um áramót 2009/2010

Fundargerðir faghóps um skráningu á rafrænu efni

Fundargerðir faghóps um varðveislu á rafrænu efni



Þeir sem vilja koma á framfæri athugasemdum eða fyrirspurnum um vinnu hópanna geta sent þær í tölvupósti á netfangið hjalp@landskerfi.is.


ELDRA EFNI: Vinna starfshópa á árunum 2002 - 2006

Fundargerðir eldri starfshópa um innleiðingu og notkun Gegnis

 


Prentvæn gerð síðunnar