www.landskerfi.is
 
www.lb.is
  Borgartúni 37, 105 Reykjavík | s. 514-5050 | fax 514-5055 | Aðstoð: hjalp@landskerfi.is | Annað: skrifstofa@landskerfi.is
 

Forsíða
Um Gegni
Fræðsla
Ýmislegt
Póstlistar
Faghópar
Fyrirtækið
Tenglar
Þjónustuvefur


 

 Forsíða — Kynning

Nýtt bókasafnskerfi fyrir íslensk bókasöfn

Menntamálaráðuneytið fyrir hönd ríkissjóðs og rúmlega 40 sveitarfélög hafa tekið höndum saman um að kaupa og reka öflugt bókasafnskerfi fyrir öll helstu bókasöfn landsins. Kerfið var formlega tekið í notkun í maí 2003 og varð þar með tiltækt fyrir almenning á vefslóðinni www.gegnir.is.

Markmið kerfisins er að tryggja landsmönnum aðgang að bókfræðilegum upplýsingum sem nýtast í námi, starfi og leik. Kerfið byggir á einni sameiginlegri skrá sem notendur leita í, annaðhvort á safni eða á Netinu. Kerfið mun geta þjónað öllum landsmönnum, það getur hýst upplýsingar um tvær milljónir titla, fimm milljónir eintaka og fimm milljónir útlána á ári.

Hér má lesa meira um kerfið Meira um kerfið

Kynning á kerfinu á skyggnum Skyggnur

 


Prentvæn gerð síðunnar