www.landskerfi.is
 
www.lb.is
  Höfðatún 2, 105 Reykjavík | s. 514-5050 | fax 514-5055 | Aðstoð: hjalp@landskerfi.is | Annað: skrifstofa@landskerfi.is
 

Forsíða
Um Gegni
Fræðsla
Ýmislegt
Póstlistar
Faghópar
Fyrirtækið
Staðsetning
Tenglar
Þjónustuvefur


 

 Leitir.is - Samþætt leitargátt fyrir Ísland

Aðgengi frá einum stað

Prentvæn gerð síðunnar

Leitarvefurinn http://leitir.is leitar samtímis í Gegni sem er samskrá velflestra bókasafna í landinu, tengdu stafrænu íslensku efni ásamt erlendum áskriftum að stafrænu vísindaefni í Landsaðgangi.

Vefurinn opnar á nýjan hátt aðgang að ómetanlegum menningarverðmætum sem fólgin eru í söfnum landsins og gera notendum kleift að afla sér margþættra upplýsinga á einum stað sér til verulegs hagræðis. Alveg er ljóst að þessi aukna leitarvirkni gagnast notendum og þá um leið þjóðinni við hvers kyns upplýsingaleit sem tengst getur skólagöngu, sérfræðivinnu, rannsóknum eða dægradvöl. Eftirfarandi gagnasöfn eru nú aðgengileg í gegnum leitarvefinn: Bækur.is sem er stafræn endurgerð gamalla íslenskra bóka, Elib sem er áskrift bókasafns Norræna hússins að rafrænum bókum, Gegnir sem er samskrá íslenskra bókasafna, Hirsla sem geymir vísinda- og fræðigreinar starfsmanna Landspítala- háskólasjúkrahúss, Hvar.is sem er landsaðgangur að erlendum gagnasöfnum og rafrænum tímaritum, Myndavefur Ljósmyndasafns Reykjavíkur sem inniheldur fjölmörg ljósmyndasöfn í eigu safnsins, Skemman sem er safn námsritgerða og rannsóknarita háskólanna og Timarit.is sem veitir aðgang að fjölmörgum dagblöðum og tímaritum sem hafa verið gefin út á Íslandi, Grænlandi og í Færeyjum. Fleiri gagnasöfn eiga eftir að bætast við. .

Samþætt leitargátt var opnuð í prófunarútgáfu 31. mars 2011. Á afmælisráðstefnu Landskerfis bókasafna 11.11.11 var leiargáttin opnuð undir nafninu leitir.is.

Hugbúnaðurinn Primo frá Ex Libris er grunnurinn í leitargáttinni.

Um nafnið

Nafn vefgáttarinnar er sótt til þess viðburðar sem á sér stað á haustin í sveitum landsins er bændur halda til fjalla og smala saman búpeningi sínum. Þeir fara í leitir. Á vefnum leitir.is fara menn einnig í leitir og smala saman upplýsingum. Það er margt sem þar kemur í leitirnar. Förum öll í leitir!

Ítarefni

Kynningarmyndband um leitir.is.
Námskeið í notkun á leitir.is - Tekið upp í Þjóðarbókhlöðu 6. desember 2011. [ca. 2. klst að lengd]
Yfirlitsmynd - Samþætt leitargátt og gagnasöfn sem eru aðgengileg í leitum.
Nánar um gagnasöfnin - Ýmsar upplýsingar um gagnasöfnin.
Spurningar og svör - Svör við athugasemdum og ábendingum notenda.
Frekari aðstoð - Leiðbeiningar um hvernig efni er tekið frá, hvernig flytja má færslur í heimildaskráningarforrit og margt fleira.

Þeir sem vilja koma á framfæri athugasemdum eða fyrirspurnum um verkefnið geta beint þeim til hjalp hjá Landskerfi.

 


Prentvæn gerð síðunnar