|
|
|
NámskeiðNámskeiðslýsingar
Þátttökuskilyrði: Almennt skilyrði fyrir setu á námskeiði er að safnið sem viðkomandi starfar hjá hafi tölvu sem tengd er starfsmannaaðgangi Gegnis.
Skráning: Námskeið eru haldin nokkrum sinnum á ári og er hægt að skrá sig á þau á skráningarsíðunni eða með því að hringja í síma 514-5050.
Eldri námskeið: Hér má sjá lista yfir námskeið sem þegar hafa verið haldin.
Námskeiðsgjald: Skráningarnámskeið, verð kr. 28.906 auk 25,5% vsk. Þó er eitt námskeiðssæti gjaldfrjálst fyrir ný aðildarsöfn.
Önnur námskeið eru gjaldfrjáls ef (a) námskeiðið er kennt af starfsmanni Landskerfis bókasafna, (b) safnið sem nemandinn vinnur hjá hefur þjónustusamning um notkun Gegnis.  | Aðfanga- og tímaritaþáttur | | Lengd: | 2 x 3,5 stundir. | | Skilyrði: | Nemandinn þarf að hafa a.m.k. 6 mánaða reynslu í almennri notkun Gegnis. | | Efni: |
- Aðföng:
- Aðfangaþáttur: Sjóðir, birgjar, pantanir.
- Tilkynningar og rukkanir.
- Tímarit:
- Áskriftir.
- Komuspár.
- Forðaupplýsingar og eintök.
- Móttaka hefta og rukkanir.
| |
|
| |  | Skráning | | Lengd: | 3x4 stundir. | | Verð (án vsk.): | Kr. 28906 | | Skilyrði: | Nemandinn hafi próf í bókasafnsfræði; safnið sé tengt aðildarsafn. | | Efni: |
- Leitir í Gegni.
- Almennt um skráningarþátt.
- Skráningarþáttur, almenn kynning.
- Nýtt marksnið, MARC21.
- Skráning í Gegni.
- Nafnmyndaskrá.
- Eintök.
Aðeins þeir sem hafa sótt námskeið í skráningarþætti Gegnis geta fengið skráningarheimild í kerfið. | |
|
| |  | Upplýsingaleit í Gegni | | Lengd: | 2 stundir. | | Skilyrði: | Nemandi þarf að hafa a.m.k. 3 mánaðar reynslu í almennri notkun Gegnis. | | Efni: |
- Mismunur á flettileit og orðaleit.
- Þrengja leit, t.d. við safn, safndeild, tungumál og ár.
- Notkun ítarleitar á gegnir.is.
- Skipanaleit.
- Að vinna með niðurstöður, röðun, vista, senda færslur.
- Að skoða vensl færslna.
Á námskeiðinu er lögð áhersla á notkun leitarþáttar í starfsmannaaðgangi en gegnir.is er þó einnig skoðaður..
| |
|
| |  | Útlán og leitir | | Lengd: | 3 stundir. | | Skilyrði: | Safnið sé að nota útlánaþátt kerfisins eða hyggist gera það innan mánaðar. | | Efni: |
- Leitir í Gegni.
- Almennt um útlánaþátt.
- Notendaskráin.
- Útlán, móttaka, gjaldfærslur, frátektir.
- Eintakaþáttur.
| |
|
| |
|
|
 
|