|
|
|
Efnisorða- og mannanafnaskrá GegnisNýr efnisorðalykill Gegnis.Efnisorðalykillinn er unninn af upplýsingatæknihópi Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafns. Hann er tvískiptur, í efnisorð og mannanöfn og velja þarf annað hvort í flipa efst á vefsíðunni. Lykillinn byggir á gögnum sem eru dregin vikulega út úr nafnmyndaskrá Gegnis. Það er því tryggt að efnisorðalykillinn endurspegli valorð í Gegni eins vel og unnt er. Hann er í stöðugri vinnslu. T.a.m. er þar að finna efnisorð án stigveldistengsla, en það gefur til kynna að ekki hafi enn verið fjallað um þau og þau því óréttmæt valorð. Efnisorð - Efnisorðin eru byggð á Kerfisbundnum efnisorðalykli (Þórdís T. Þórarinsdóttir og Margrét Loftsdóttir, 3. útg. 2001) með áorðnum breytingum sem samþykktar hafa verið í efnisorðaráði. Í efnisorðaráði, sem starfar á vegum Landskerfis bókasafna hf., hafa setið frá upphafi (2004) Elísabet Halldórsdóttir, Guðný Ragnarsóttir, Ragna Steinarsdóttir og Þórdís T. Þórarinsdóttir. Mannanöfn - Umsjón með nafnmyndaskrá fyrir mannanöfn í Gegni er í höndum Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns. Aðaláhersla er lögð á íslensk mannanöfn. Flestir Íslendingar sem skráðir eru fyrir efni í Gegni eru í nafnmyndaskránni með ártölum og/eða nánara auðkenni, oftast starfsheiti. Nafnmyndafærslur fyrir erlend mannanöfn eru gerðar þegar vísa þarf frá mismunandi rithætti eða dulnefnum. Notkun - Hægt er að leita eftir stafrófsröð (byrjar á) eða í orðaleit (inniheldur). "Er nákvæmlega" flipinn færir mann beint í viðkomandi stigveldi ef samsvarandi leitarorð finnst. Plúsmerki (+) aftan við efnisorð gefur til kynna að fleiri þrengri heiti sé að finna þar undir. Vikorð (þau orð sem vísað er frá) eru yfirstrikuð, bæði mannanöfn og efnisorð. Öruggast er að leita að mannanöfnum í orðaleit (inniheldur). |