www.landskerfi.is
 
www.lb.is
  Borgartúni 37, 105 Reykjavík | s. 514-5050 | fax 514-5055 | Aðstoð: hjalp@landskerfi.is | Annað: skrifstofa@landskerfi.is
 

Forsíða
Um Gegni
Fræðsla
Ýmislegt
Póstlistar
Faghópar
Fyrirtækið
Tenglar
Þjónustuvefur


 

 Hvað er SFX?

SFX Classic

Hvað er SFX?

SFX er krækjukerfi sem gefur aðgang að heildartexta rafrænna gagna og tímarita. Þegar smellt er á SFX-hnappinn birtist SFX-gluggi þar sem ýmis önnur þjónusta er í boði en aðgangur að heildartexta, svo sem leit í öðrum gagnagrunnum/kerfum eða beiðni um millisafnalán. Athugið að beiðnir um millisafnalán eru gjaldskyld. Vinsamlegast kynnið ykkur gjaldskrár safnanna.

Hverjir geta notað SFX?

Allir geta notað tímaritalista fyrir landsaðgang sem er að finna á síðu Hvar.is. Kjarninn í SFX eru áskriftir landsaðgangs að rafrænum gögnum og tímaritum. Notendur þeirra safna sem eru aðilar að SFX geta leitað í tímaritalistum (A-Z) síns safns þar sem aðgangur er að áskriftunum í landsaðgangi ásamt séráskriftum hvers safns.

Hvaða söfn eru aðilar að SFX?

Hvar.is, Háskólinn í Reykjavík, Háskólinn á Akureyri, Landsbókasafn Íslands - háskólabókasafn, menntavísindasvið Háskóla Íslands auk Listaháskóla Íslands.

Hvers vegna er ekki alltaf aðgangur að heildartexta?

Ef hvorki landsaðgangur né bókasöfnin eru áskrifendur að tímaritunum/gagnagrunnunum er enginn aðgangur að heildartexta. Ef heildartexti er ekki til í rafrænu formi er mögulegt að leita að prentuðum texta í Gegni eða öðrum gagnagrunnum.

Hvers vegna kemst ég ekki alltaf strax í heildartextann?

Það er ekki mögulegt að krækja beint í heildartextann. Með hjálp SFX er hægt að nálgast heildartextann, réttan tímaritstitil, ákveðinn árgang eða hefti. Í einhverjum tilfellum er eingöngu krækja á síðu tímaritsbirgis þar sem notandi þarf að leita áfram til að finna heildartextann.

Í hvaða gagnagrunnum finn ég SFX-hnappinn?

EbscoHost, Proquest, Sage, Springer Link, Web of Science

Hvernig panta ég grein ef ekki er aðgangur að heildartexta?

Í SFX-glugganum er mögulegt að panta efni í millisafnaláni (gegn greiðslu). Fylla þarf út formið og síðan sér starfsfólk viðkomandi bókasafns um að afgreiða beiðnina. Auk nafns er nauðsynlegt að fylla út kennitölu og netfang.