www.landskerfi.is
 
www.lb.is
  Höfðatún 2, 105 Reykjavík | s. 514-5050 | fax 514-5055 | Aðstoð: hjalp@landskerfi.is | Annað: skrifstofa@landskerfi.is
 

Forsíða
Um Gegni
Fræðsla
Ýmislegt
Póstlistar
Faghópar
Fyrirtækið
Staðsetning
Tenglar
Þjónustuvefur


 

 Fréttasafn

Sjálfsafgreiðsluvélar í Borgarbókasafni [2007-07-02]

Í aðdraganda sumars hófst Borgarbókasafn Reykjavíkur handa við innleiðingu sjálfsafgreiðsluvéla (Codeco) í Aðalsafni, Gerðubergi og Kringlusafni. Vélarnar taka til bæði útlána og skila.
Sjálfsafgreiðsluvélarnar eru tengdar við Gegni í gegnum svokallaðan SIP2 samskiptastaðal. Landskerfi bókasafna hefur haft veg og vanda af því að tryggja að samskipti vélanna og Gegnis gangi snuðrulaust fyrir sig. Vinnan hefur gengið vel og hefur samstarf á milli aðila verið með miklum ágætum.

Almenningsbókasöfnin á Akureyri, í Hafnarfirði og í Kópavogi hafa þegar ákveðið að feta í fótspor Borgarbókasafnsins og hefja innleiðingu sjálfsafgreiðsluvéla síðar á árinu.

 


Prenta