|
|
|
InnleiðingAlmennt um Gegni
Forsagan
Innleiðing Aleph 500 í bókasöfn á Íslandi
Með tilliti til
íbúafjölda getur hið íslenska bókasafnsumhverfi ekki talist stórt
á alþjóðlegan mælikvarða. Innleiðing Aleph 500 í íslensk bókasöfn
er engu að síður umfangsmikið verkefni, m.a. vegna þess að hér sameinast margar mismunandi tegundir safna um eitt kerfi. Nú í júlí 2004 hafa verið flutt gögn úr tveimur eldri bókasafnskerfum í nýja kerfið og er ætlunin að bæta því þriðja við veturinn 2004-2005. Um leið er tekið í notkun nýtt skráningarsnið, svonefnt MARC21.
Innleiðing bókasafnskerfis á landvísu er ekki möguleg nema til komi góð samvinna þeirra aðila sem sjá um uppsetningu þess, það er Landskerfis bókasafna, og þeirra bókasafna sem taka kerfið í notkun.
Helstu þættir innleiðingar
| • | Undirritun samnings þann 3. maí 2001 við Ex Libris um kaup á Aleph 500
bókasafnskerfinu fyrir öll söfn landsins. |
| • | Vinnufundir vegna kerfisgreiningar. |
| • | Vélbúnaður. Haustið 2001 útboð vegna hýsingar kerfisins. |
| • | Verkáætlun og undirbúningur. |
| • | "Configuration questionnaires" svarað fyrir hvert safn. |
| • | Uppsetning taflna, skjámynda og tilkynninga. |
| • | Þýðing á kerfinu. |
| • | Yfirfærsla gagna |
| • | Þjálfun starfsfólks. |
| • | Prufukeyrsla. |
| • | STP (switch to production) eða "opnun kerfisins". |
Hlutverk Landskerfis bókasafna
| • | Innleiðing Aleph 500 á landsvísu. |
| • | Annast samskipti við Ex Libris. |
| • | Aðild að alþjóðlegu notendafélagi Aleph 500. |
| • | Ber ábyrgð gagnvart Ex Libris á heimtingu og skjölun gagna. |
| • | Umsjón með þjálfun og kennslu. |
| • | Umsjón með rekstri kerfisins. |
Hlutverk bókasafna
| • | Heimting gagna úr núverandi kerfum í formati samþykktu af Ex Libris. |
| • | "Möppun" upplýsinga frá núverandi kerfum yfir í samsvarandi svið í
Aleph. |
| • | Hreinsa upp villur í gagnagrunnum sínum eftir föngum. |
| • | Taka þátt í svörun "Configuration guestionnaire" fyrir hvern þátt
kerfisins. |
| • | Hvert safn tilnefnir einn aðila sem er tengiliður við kerfisskrifstofu.
Það er svo á ábyrgð tengiliðarins að koma upplýsingum frá
kerfisskrifstofu á framfæri við aðra starfsmenn í sínu
safni. |
Opnun kerfisins
| • | Kerfið var opnað almenningi 19. maí 2003. |
|
|
 
|