www.landskerfi.is
 
www.lb.is
  Höfðatún 2, 105 Reykjavík | s. 514-5050 | fax 514-5055 | Aðstoð: hjalp@landskerfi.is | Annað: skrifstofa@landskerfi.is
 

Forsíða
Um Gegni
Fræðsla
Ýmislegt
Póstlistar
Faghópar
Fyrirtækið
Staðsetning
Tenglar
Þjónustuvefur


 

 Um Gegni

Aleph 500

Gegnir byggir á bókasafnskerfinu Aleph 500 frá Ex Libris, en þetta kerfi og önnur kerfi fyrirtækisins eru notuð hjá 1.650 viðskiptavinum í 57 löndum, þar á meðal hjá British Library, MIT, University College i London, AstraZeneca, Hebreska háskólanum í Jerúsalem, Landsbókasafni Rússlands, Konunglega bókasafninu í Kaupmannahöfn og Landsbókasafni Kína (upplýsingar frá september 2005). Ex Libris hefur yfir 20 ára reynslu í þróun og rekstri bókasafnskerfa og er Aleph 500 flaggskipið.

Aleph 500 er biðlara-miðlara kerfi sem keyrir á Oracle gagnagrunnskerfi og byggir á ríkjandi stöðlum, svo sem Z39.50, Unicode og MARC 21.

Aleph 500 er alhliða, samhæft bókasafnskerfi sem nýtist í öllum almennum verkefnum og rekstri bókasafna. Það skiptist í eftirfarandi þætti: aðföng, skráningu, tímaritahald, leit, útlán, millisafnalán og almenningsaðgang. Kerfið hentar bókasöfnum óháð stærð og safnategund.

Starfsmenn vinna í Windows umhverfi en almennir notendur tengjast kerfinu í vefviðmóti. Frá heimasíðu Ex Libris er hægt að tengjast hinum fjölmörgu notendum Aleph 500 og sjá þær mismunandi leiðir sem þeir hafa valið sér við uppsetningu og útlitsmótun kerfisins.


Aleph 500 bókasafnskerfið á Íslandi

Sú útgáfa af Aleph 500 sem nú er í notkun hérlendis er 18.01. Uppsetning kerfisins felur í sér að flett er upp í einni bókfræðilegri samskrá og því er hægt að leita í safnkosti aðildarsafna kerfisins á einum stað. Kerfið er keyrt á fjórum öflugum x-Series IBM tölvum sem nota Linux stýrikerfið, og eru hýstar hjá Nýherja hf. Kerfisbúnaður og vefþjónn eru vistaðir á einnig vél og gagnagrunnur á annarri. Hinar tvær vélarnar geyma sams konar uppsetningu sem notuð er við kennslu, uppfærslur og prófanir hvers konar. Búnaður kerfisins miðast við að 550 bókaverðir geti notað það samtímis, auk 300 samtímanotenda á vefnum.


Marksnið

Marksnið (MARC format) eru staðlar fyrir skráningu bókfræðilegra upplýsinga á tölvutæku formi.

Misjafnt er eftir bókasafnskerfum hvaða marksnið hafa verið í notkun hérlendis. Með tilkomu Aleph 500 verður tekið upp MARC21 sniðið eða USMARC eins og það er einnig nefnt. MARC21 er það snið sem er ríkjandi í dag en svo virðist sem bókfræðisnið bundin við tiltekin lönd séu á undanhaldi. Til að mynda hefur British Library hætt viðhaldi á UKMARC sniðinu.

Umsjón með þýðingu á MARC21 sniðinu yfir á íslensku er í höndum Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns.

 


Prenta