www.landskerfi.is
 
www.lb.is
  Borgartúni 37, 105 Reykjavík | s. 514-5050 | fax 514-5055 | Aðstoð: hjalp@landskerfi.is | Annað: skrifstofa@landskerfi.is
 

Forsíða
Um Gegni
Fræðsla
Ýmislegt
Póstlistar
Faghópar
Fyrirtækið
Tenglar
Þjónustuvefur


 

 Verkefni: uppfærsla Gegnis í útgáfu 18

Almennt um verkefnið

Aðalverkefni Landskerfis bókasafna veturinn 2007 – 2008 eru endurgerð gegnir.is ásamt uppfærslu bókasafnskerfisins Gegnis. Áætlað er að þessari vinnu verði lokið 11. júní 2008 en þá verður nýr vefur opnaður í nýrri útgáfu af bókasafnskerfinu.

Markmiðið með endurgerð gegnir.is er fyrst og fremst að stuðla að jákvæðari reynslu notenda. Fyrir utan nýtt útlit hefur verið unnið að lausn ýmissa vandmála í leitarvefnum. Þessi vandmál lúta fyrst og fremst að meðferð eintaka, leitarflæði og framsetningu sértækrar þjónustu fyrir notendur.

Gegnir byggir á kerfi sem heitir Aleph 500 og er þróað af fyrirtækinu Ex Libris. Með uppfærslu bókasafnskerfisins Gegnis er átt við að Aleph 500 kerfið verður uppfært úr útgáfu 16 í útgáfu 18. Til að styðja við þessa vinnu var stofnaður verkefnahópur sem samanstendur af fulltrúum stærstu aðildarsafna Gegnis, formanni Aleflis (sem er notendafélag Gegnis) ásamt starfsfólki frá Landskerfi bókasafna. Fundargerðir verkefnahóps eru aðgengilegar hér að neðan:

Fundargerðir verkefnahóps vegna útgáfu 18


Nánar um verkefnið

Aðgerðaráætlun vegna gangsetningar
Staða verkefnis 15. apríl

Þeir sem vilja koma á framfæri athugasemdum eða fyrirspurnum um verkefnið geta beint þeim til hjalp hjá Landskerfi.

 


Prentvæn gerð síðunnar