2

Main content

main

Breytingar á símsvörun þjónustuborðs

Á nýju ári verða breytingar á símsvörun þjónustuborðs hjá Landskerfi bókasafna. Ástæðan er sú að ákveðið hefur verið að stytta vinnudaginn um hálftíma mánudaga til fimmtudaga og um tvær klukkustundir á föstudögum.
Símsvörun verður því með neðangreindum hætti:


•    Mánudaga til fimmtudaga:  frá kl. 9:00 – 16:00.
•    Föstudaga:  frá kl. 9:00 – 15:00.


Svo minnum við á að ef upp koma kerfisbilanir eða önnur brýn vandamál sem ekki þola bið, má hringja í vaktsímann okkar, 821 8200. Svarað er í vaktsímann frá kl. 16:00-22:00 mánudaga til fimmtudags, frá kl. 15:00-22:00 föstudaga og frá kl. 10:00-17:00 um helgar.
 

Myndin með fréttinni er fengin úr Sarpi og sýnir safngrip í eigu Iðnaðarsafnsins á Akureyri.

horizontal

fblikebutton_dynamic_block