2

Main content

Fréttir

main

Um nokkra hríð hefur verið unnið að undirbúningi vegna útgáfu nýs biðlara fyrir Gegni. Uppfærslan er tilkomin vegna þjónustupakka sem leiðréttir og uppfærir miðlægan hugbúnað bókasafnskerfisins.

Vegna uppfærslunnar verður bæði starfsmannaaðgangur Gegnis og gegnir.is lokaður frá kvöldi mánudagsins 9. apríl og fram eftir morgni þriðudaginn 10. apríl.

Upplýsingar um uppfærslu biðlarans verða sendar út á póstlista Landskerfis bókasafna hf. að morgni þriðjudags. Ef starfsfólk lendir í vandamálum við uppfærsluna, er þeim bent...

Skrifstofa Landskerfis bókasafna verður lokuð föstudaginn 23. mars 2007 vegna þátttöku starfsmanna á ráðstefnum hérlendis og erlendis.
Vinsamlegast sendið beiðnir um aðstoð á netfangið hjalp hjá landskerfi.is. Einnig minnum við á þjónustusímann 8218200 fyrir neyðartilvik.

Skrásetjarar sem sækja færslur í gegnum OCLC, geta nú nálgast uppfærðar leiðbeiningar um ferlið á þjónustuvef undir yfirskriftinni leiðbeiningar vegna útgáfu 16.

Vinna við endurskoðun á vefviðmótinu gegnir.is er hafin. Um er að ræða umfangsmesta verkefni Landskerfis bókasafna á starfsárinu 2007.
Þessa dagana stendur yfir vinna við stöðumat og þarfagreiningu. Viðmótspróf hafa verið framkvæmd. Einnig hafa verið stofnaðir rýnihópar sem í sitja fulltrúar aðildarsafna Gegnis, auk starfsmanna Landskerfis bókasafna. Rýnihóparnir eru fjórir talsins, 1) Leitarskilyrði, 2) Útlit og aðgengi, 3) Sýndargrunnar og 4) Leitarniðurstöður. Einnig munu verða starfandi rýnihópar vegna annars vegar tímarita, og...

Yfirlit yfir helstu verkefni Landskerfis bókasafna á starfsárinu 2007, er að finna til hægri á heimasíðunni undir "Verkefnalisti".

Skráningarráð hefur samþykkt nýjar reglur um greiningu útgáfuárs á bókum. Skjalið hefur verið sett undir "Leiðbeiningar" á vefsvæði Skráningarráðs eða http://www.landskerfi.is/kerfin/gegnir/skraningarrad

Vinnureglur um notkun sjóða og birgja í aðfangaþætti Gegnis hafa verið settar á heimasíðuna. Veljið Fræðsla og síðan Námsgögn til vinstri á heimasíðunni til þess að nálgast skjölin.

Tvöfaldar færslur fyrir sama efni í Gegni má einkum rekja til ólíkra skráningarhefða í gamla Gegni og Feng. Af þeim sökum náði efnið ekki að parast vélrænt. Það sem eftir stendur þarf að para handvirkt, en sú vinna felst í því að útbúa eina skráningarfærslu og færa öll eintök allra aðildarsafna á hana.

Í þessu skjali eru leiðbeiningar um hvernig velja skuli bókfræðifærslu til þess að tengja eintökin við. Fjallað er um:

...
Uppruna færslna – nýskráðar, sameinaðar, úr gamla Gegni eða Feng.

Kerfisvinnu í Gegni, sem hófst laugardag 6. janúar, er nú lokið og Gegnir er kominn í rekstur á nýjan leik.