2

Main content

main

Nýr starfsmaður hefur störf hjá Landskerfinu

Óttar Rafn Ellingsen, hefur verið ráðinn til starfa hjá Landskerfi bókasafna.

Óttar er tölvunarfræðingur að mennt og hefur m.a. starfað sem slíkur á Landsspítalanum, í fjarskiptageiranum á Ítalíu auk þess að hafa víðtæka reynslu af uppbyggingu upplýsingatæknikerfa fyrir ferðaskrifstofur í Skandinavíu.

Hjá okkur mun hann vinna við hönnun, forritun og umsjón á gegnir.is, úrvinnslu gagna, forritun hliðarkerfa auk þess að sinna almennum þjónustuverkefnum.

Við bjóðum Óttar velkominn til starfa hjá fyrirtækinu!

horizontal

fblikebutton_dynamic_block