2

Main content

main

Útlánamet ársins 2005: Örugg forysta Arnaldar

Landskerfi bókasafna hefur tekið saman lista yfir þær bækur sem mest voru lánaðar út í Gegni á árinu 2005 og þau söfn sem virkust voru í útlánum. Af íslenskum skáldsögum eru það bækur Arnaldar Indriðasonar sem mest eru lánaðar út og skipa þær 7 efstu sætin á lista yfir 10 útlánahæstu bækurnar í þeim flokki. Af söfnum er það Borgarbókasafnið sem afkastamest er í útlánum. Hér fyrir neðan sjást listarnir yfir 10 útlánahæstu rit í hverjum flokki.

  A. Allar bækur
1 Kleifarvatn / Arnaldur Indriðason.
2 Kafteinn Ofurbrók og vandræðin með prófessor Prumpubrók / Dav Pilkey.
3 Kafteinn Ofurbrók og brjálaða brókarskassið / Dav Pilkey.
4 Kafteinn Ofurbrók og innrás ótrúlega asnalegu eldhúskerlinganna ... / Dav Pilkey.
5 Da Vinci lykillinn : skáldsaga / Dan Brown.
6 Röddin / Arnaldur Indriðason.
7 Grafarþögn / Arnaldur Indriðason.
8 Synir duftsins / Arnaldur Indriðason.
9 Skúli skelfir verður ríkur í hvelli / Francesca Simon.
10 Skúli skelfir og draugagangurinn / Francesca Simon.
   
  Athugasemd
  Sú breyting er gerð á þessum lista frá fyrra ári að ritraðir eru ekki hafðar á honum
þó að þær kunni að vera skráðar sem einn titill í Gegni. Þegar deilt er með fjölda hefta
í ritröðinni í útlánafjölda komast þær ekki á lista tíu útlánahæstu. Þess vegna eru
Myndasögusyrpa Walt Disney, Gæsahúð Helga Jónssonar og Ógnaröfl eftir Chris Wooding
ekki með á listanum að þessu sinni en hefðu ella verið efstar.
   
  B. Íslenskar skáldsögur
1 Kleifarvatn / Arnaldur Indriðason.
2 Röddin / Arnaldur Indriðason.
3 Grafarþögn / Arnaldur Indriðason.
4 Synir duftsins / Arnaldur Indriðason.
5 Bettý / Arnaldur Indriðason.
6 Dauðarósir / Arnaldur Indriðason.
7 Mýrin / Arnaldur Indriðason.
8 Karitas : án titils / Kristín Marja Baldursdóttir.
9 Óþekkta konan : skáldsaga / Birgitta H. Halldórsdóttir.
10 Dauðans óvissi tími / Þráinn Bertelsson.
   
  C. Íslenskar barna- og unglingabækur
1 Fíasól í fínum málum / Kristín Helga Gunnarsdóttir ; Halldór Baldursson myndskreytti.
2 Gæsahúð (ritröð, m.v. meðalúlán á heftin 9) / Helgi Jónsson.
3 Brennan : sögur úr Njálu / Embla Ýr Bárudóttir, Ingólfur Örn Björgvinsson.
4 Drottning drekanna / [saga og myndir] Ólafur Gunnar Guðlaugsson.
5 Öðruvísi fjölskylda / Guðrún Helgadóttir ; [myndir Anna Cynthia Leplar].
6 Svalasta 7an / Þorgrímur Þráinsson.
7 Undir 4 augu / Þorgrímur Þráinsson.
8 Strandanornir : galdrasaga af Ströndum / Kristín Helga Gunnarsdóttir.
9 Gralli gormur og litadýrðin mikla / Bergljót Arnalds o.fl.
10 Öðruvísi dagar / Guðrún Helgadóttir ; [myndir Anna Cynthia Leplar].
   
  D. Íslenskar ævisögur og rit almenns efnis
1 Fuglarnir okkar / Stefán Aðalsteinsson og Grétar Eiríksson.
2 Barn að eilífu / Sigmundur Ernir Rúnarsson.
3 Kortabók handa grunnskólum / [ritstjórn Inga Hagdahl og Tryggvi Jakobsson].
4 Arabíukonur : samfundir í fjórum löndum / Jóhanna Kristjónsdóttir.
5 Linda : ljós og skuggar / Reynir Traustason.
6 Ólöf eskimói : ævisaga íslensks dvergs í Vesturheimi / Inga Dóra Björnsdóttir.
7 Hundabókin okkar / ritstjórn Herbert Guðmundsson.
8 Á vængjum söngsins : Jónas Ingimundarson segir frá / Gylfi Gröndal.
9 Heilagur sannleikur / Flosi Ólafsson.
10 Átakadagar : ævisaga Elínar Torfadóttur / Kolbrún Bergþórsdóttir.
   
  E. Tímarit
1 Andrés Önd.
2 Vikan.
3 Séð og heyrt.
4 Lifandi vísindi.
5 Hús og híbýli.
6 Femina.
7 Gestgjafinn : tímarit um mat.
8 Hello!
9 Alt for damerne.
10 Í formi.

horizontal

fblikebutton_dynamic_block