Main content
main
Prentun bókamiða
Uppsetning bókamiðaprentara
Nauðsynlegt er að setja strikamerkjaprentara upp sem „Generic/Text Only“ en ekki með sjálfgefnum driver framleiðanda til að miðarnir prentist rétt.
- Í Windows 8 og 10 getur komið til þess að það þurfi tvöfalda uppsetningu á prentarann. Fyrri uppsetningin er þá sjálfgefin uppsetning með driver frá framleiðanda. Síðan þarf að setja prentarann upp aftur handvirkt við hliðina á fyrri uppsetningu, og þá velja „Generic/Text Only“ í staðinn fyrir driver framleiðandans.
Stillingar fyrir prentun bókamiða
Setja þarf inn stillingar í tvær biðlaraskrár á tölvum sem tengjast miðaprentara:
ALEPHCOM.INI og /CATALOG/../PRINT.INI.
- Biðlarinn má ekki vera opinn í tölvunni meðan stillingum er breytt
- Það þarf ekki administrator-réttindi til að gera breytingarnar
- Opnið skrárnar í Notepad og vistið að loknum breytingum
Athugið: Sumar tölvur eru stilltar á að sýna ekki endingu skrárheita og þá birtast heiti skránna sem ALEPHCOM og PRINT.
Skráin Alephcom.ini
C:\AL500\Alephcom\tab\Alephcom.ini
- Stilla DefaultPrintConfig=0 (breyta ef það er =1):
[Print]
SaveHistoryNumberOfDays=31
DefaultPrintConfig=0
TempDir=c:\temp\Aleph
TempFileCounter=1063
NewPrintType=Y
- Setja inn heiti miðaprentarans í [PrinterDeviceList]
[PrinterDeviceList]
; Til að skilgreina prentara, aðra en sjálfgefinn prentara.
; Heiti prentara sést í prentaraglugga tölvu undir Control Panel->Printers
; Dæmi: Device01=Bokamidar Device02=Kvittanir
Device01=
Device02=
Device03=
Device04=
Device05=
- Passa að ekki sé bil á milli = og prentaraheitis.
- Nauðsynlegt er að heiti prentarans sé sett stafrétt inn í PrinterDeviceList, þ.e. stórir stafir og bil skipta máli. Rétt heiti prentarans sést í prentaraglugga tölvunnar (t.d. Bokamidar eða tegundarheiti, s.s. Zebra ZT220).
- Prentaraglugginn er opnaður úr START-hnappi tölvunnar (Start -->Devices and Printers eða Start -->Control Panel -->Devices and Printers).
Skráin Print.ini í \Catalog\tab
C:\AL500\Catalog\tab\Print.ini
Línan fyrir bókamiða heitir ItemLabel: skilgreina format 30 fyrir form bókamiða (dálkur 2).
Miðanum er beint á miðaprentarann með DEVICE-01 í dálki 6.1 í skránni.
- Athugið: Það verður að skrifa DEVICE-01 með stórum stöfum og passa að það lendi nákvæmlega í dálki 6.1 í skránni. Ef það lendir einu bili of langt til vinstri eða hægri þá finnur kerfið ekki prentarann.
Í skránni eru fleiri línur en aðeins þarf að breyta einni línu til að skilgreina prentun bókamiða. Í dæminu hér fyrir neðan táknar [.....] línur fyrir ofan/neðan sem ekki má breyta.
Ekki má nota TAB-hnapp við að færa bendil í línu. Notið bilslá (space bar).