2

Main content

main

Minnisblað fyrir skráningu í Húsaskrá

Cecilie Gaihede og Þorvaldur Böðvarsson, haust 2019.


Inngangur:

Þessar leiðbeiningar eiga við um skráningu í Húsaskrá og fjalla um helstu aðgerðir tengdar skráningu húsa í Sarp.


Skrá Hús: 

  1. Þegar skráning er hafin er smellt á Aðföng -> Hús. Þá birtist yfirlitsgluggi með tilheyrandi undirskrám. 
  2. Þá er smellt á „STOFNA FÆRSLU“  Sjá mynd:  

 

Í kjölfarið birtist aðfangasniðið


 

Næstu skref: 


Mælt er með að byrja skráningu með að tengja og hlaða upp í „myndir/skjöl/teikningar“. Hægt er að tengja eins margar myndir og þarf.

  • Til að tengja mynd/skjal/teikningu við skráninguna er smellt á „Hlaða upp mynd/skjali/teikningu“  Sjá mynd: 

 


Skráning mynda: 

  1. Síðan „Choose file“ 
  2. Velja síðan myndina smella á „Open“ 
  3. Að lokum er smellt á „Samþykkja.“ Ef vill er hægt að fylla út viðeigandi upplýsingar um rafrænu myndina/skjalið/teikninguna. Sjá mynd: 

 

 

Grunnupplýsingar

  • Hér eru upplýsingar um húsið settar inn eins ítarlega og hægt er. Mælt er með að renna vel yfir alla skráningarmöguleikana í aðfangasniðinu.
  • Lágmarksskráningar til að geta vistað aðfangasnið eru: Undirskrá og Hús.
  • Til að nálgast ítarlegri upplýsingar um ákveðin skráningaratriði og nákvæmari lýsingar á skráningarreitunum er mælt með að skoða kafla IV. Hús í Skráningarhandbók Sarps 2.0 sem hægt er að nálgast á þjónustuvefnum á landskerfi.is. 
  • Síðan er smellt á „Vista“. Sjá mynd:

 


Aðrar upplýsingar

  • Hér er mikilvægt að skrá í frjálsa textareitinn allar nánari upplýsingar um húsið sem vitað er um.
  • Gott er að hafa það í huga að nokkrir af reitunum birtast á ytri vef sarpur.is ef valið er að birta húsið þar. Það þarf því að gæta þess með almenning í huga að textinn í þessum reitum sé vel unninn og lýsandi fyrir húsið.
  • Síðan er smellt á „Vista“