2

Main content

main

Minnisblað fyrir skráningu í Myndlistar- og hönnunarskrá

Cecilie Gaihede og Þorvaldur Böðvarsson, haust 2019.

Inngangur:

Þessar leiðbeiningar eiga við skráningu aðfanga í Myndlist/Hönnun og fjalla um helstu aðgerðir tengdar skráningu myndlistar og hönnunar.
Þegar skráning er hafin er smellt á Aðföng -> Myndlist/Hönnun. Þá birtist yfirlitsgluggi með tilheyrandi undirskrám. Þá er smellt á „STOFNA FÆRSLU“. 

  • Hraðskráningarsnið er hér valið ef við á (Ef hraðskráningarsnið er valið, má lesa nánar um það í Minnisblað fyrir stofnun Hraðskráningarsniðs). Skráð er í opna tölureitinn „Fjöldi“ ef verið er að skrá ákveðinn fjölda aðfanga í einu. Síðan er smellt á „Samþykkja“. 

 

Í kjölfarið birtist aðfangasniðið


Skrá Listaverk:

1)    Tengja myndir/skjöl/teikningar

  • Mælt er með að byrja skráningu með að tengja og hlaða upp mynd/skjali/teikningu. Hægt er að tengja eins margar myndir og þarf. 
  • Til að tengja mynd/skjal/teikningu við skráninguna er smellt á „Hlaða upp mynd/skjali/teikningu“. 

 

  • Síðan er smellt á  „Choose file“ og myndin valin, smellt á „Open“ og síðan „Samþykkja.“  Ef vill er hægt að fylla út viðeigandi upplýsingar um rafræna mynd/skjal/teikningu. Sjá mynd:

 

 

Grunnupplýsingar

  • Hér er fyllt út eins ítarlega og hægt er upplýsingar um verkið sem verið er að skrá. Mælt er með að renna ítarlega yfir alla skráningarmöguleikana og fylla út eftir bestu getu.
  • Lágmarksskráningar til að geta vistað aðfangasnið eru: Undirskrá, Safnnúmer, Efni, Listamaður/höfundur/hönnuður ásamt Verkheiti (Ef verk er ekki með verkheiti skal skrifa „Nafnlaus“ í sviga í reitinn verkheiti).
  • Til að nálgast ítarlegri upplýsingar um ákveðin skráningaratriði og nákvæmari lýsingar á skráningarreitunum er mælt með að skoða kafla VII. Myndlist/Hönnun í Skráningarhandbók Sarps 2.0 sem hægt er að nálgast á þjónustuvefnum landskerfi.is. Sjá mynd: 
     

 

 


Aðrar upplýsingar

  • Hér er mikilvægt að skrá í frjálsu textareitina allar nánari upplýsingar um verkið sem vitað er um. Gott er að hafa það í huga að reitirnir „Lýsing“, „Sýningartexti“ og „Heimildir“ eru reitir sem birtast á ytri vef sarpur.is ef valið er að birta verkið þar. Það þarf því að gæta þess með almenning í huga að textinn í þessum reitum sé vel unnin og lýsandi fyrir verkið. Síðan er smellt á „Vista“.

 

 

 

 

Fjármál:

  • Reiturinn Fjármál er einungis til fyrir skráningu listmuna. Hér á að skrá viðeigandi upplýsingar um hvernig fjármálasögu verksins er háttað ef hún er þekkt. Þetta snið þarf að fylla út til að virkja eigendasöguna. 
  • Mælt er með að renna ítarlega yfir alla skráningarmöguleikana og fylla út eftir bestu getu. Síðan er smellt á „Vista“. Sjá mynd: